ENSK1GF04S - Enskunotkun á netinu, á samfélagsmiðlum og óformlegt mál.
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér hagnýtan orðaforða til daglegra samskipta með áherslu á óformlegt mál eins og það birtist okkur á samfélagsmiðlum og á netinu. Farið er í margvíslegt efni á netinu svo sem orðaforða og texta tengdan tölvum og tækni sem og gagnvirk verkefni. Ritun og kynningar eru tengdar áhugasviði nemenda.
Markmið:
Nemandinn skal öðlast þekkingu og skilning á:
- Algengum orðum og orðasamböndum í rituðu og töluðu máli
- Réttri stafsetningu algengra orða sem koma fyrir í námsefni
- Notkun hjálpargagna, svo sem leitarvéla og stafrænna orðabóka
- Almennum rauntextum og einföldum bókmenntaverkum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem henta hverjum og einum
- Skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og greinilega
- Beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
- Skilja almenna, einfalda texta
- Nota upplýsingatækni og hjálpargögn íerlendum tungumálum
- Skrifa stutta, einfalda texta um málefni sem hann hefur kynnt sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nýta orðaforða sinn í tal – og ritmáli
- Nýta sér upplýsingar sem koma fram á netmiðlum og á öðrum miðlum
- Taka þátt í umræðum um ýmisleg efni og taka tillit til skoðana annarra