ENSK1FÖ02Z - Enska með áherslu á algengan orðaforða tengdan ferðalögum
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áhersla er lögð á að vinna með orðaforða í tengslum við ferðalög erlendis, ferðamennsku og að nemendur þjálfist í að nýta sér þjónustu á ensku. Nemendur kynnast mismunandi áfangastöðum, menningu þeirra og mannlífi.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum tengdum ferðamennsku og ferðaþjónustu
- hvar hægt er að leita upplýsinga fyrir ferðalög erlendis
- erlendri menningu og mannlífi
- í hvaða löndum enska er móðurmál
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita eftir upplýsingum og skipuleggja ferðalag
- tjá sig og taka þátt í samskiptum á ensku
- nýta sér þjónustu á ensku
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér upplýsingar sem hann hefur aflað með eða án aðstoðar
- eiga samskipti á ensku eftir getu
- geta sett fram upplýsingar á ensku og kynnt fyrir öðrum
- ferðast um heiminn hvort sem er í raun eða einungis í huganum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér upplýsingar sem hann hefur aflað með eða án aðstoðar
- eiga samskipti á ensku eftir getu
- geta sett fram upplýsingar á ensku og kynnt fyrir öðrum
- ferðast um heiminn hvort sem er í raun eða einungis í huganum