ENSK1DO02Z - Enska með áherslu á einfaldan orðaforða í daglegu lífi
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áhersla er lögð á orðaforða sem tengist daglegu lífi. Markmiðið er að auka sjálfstraust nemenda í tungumálinu og viðfangsefnið hverju sinni nálgast með kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum í nærumhverfi, t.d. heimili, skóla og vinnu.
- mikilvægi enskunnar í daglegu lífi
- hvernig leikni í tungumálum getur opnað nýjan heim
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
- tjáningu á einfaldri ensku í daglegu lífi
- hlustun og skilningi einfaldara enskra orða/orðasambanda
- ritun og lestri einfaldra enskra orða/orðasambanda
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér einföld ensk orð og orðasambönd til tjáningar, lesturs og hlustunar
- skilja mikilvægi þess að geta tjáð sig á fleiri en einu tungumáli