ENBÍ2BE02 - Enska fyrir bíliðngreinar
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemendur lesa efni sem tengist bíliðngreinum, svo sem kennsluefni, viðgerðarbækur auk tómstunda- og fræðigreina. Þjálfuð er ritun á enskum texta sem nýtist við dagleg störf í bíliðngreinum. Nemendur öðlast hæfni til að halda kynningar og halda uppi samtali á ensku þar sem notaður er orðaforði bíliðngreina. Nemendur byggja upp orðaforða sem tengist bílum og viðgerðum á þeim. Einnig verður farið í upprifjun grunn málfræði til að byggja upp faglegan frágang í tali og texta.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Orðaforða á ensku sem tengist bílum og viðgerðum á þeim.
- Hefðum sem eiga við um talað og ritað mál á ensku í tengslum við bíliðngreinar.
- Orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi og auðveldar honum nám í viðkomandi grein.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lesa og skilja texta, svo sem viðgerðarupplýsingar, bæklinga og fræðigreinar með það að markmiði að auka orðaforða sinn og afla upplýsinga.
- Undirbúa og flytja kynningar.
- Nota orðabækur og orðasöfn (rafræn).
- Skrifa texta um margvísleg málefni tengd faggreininni, t.d. tölvupósta, vörupantanir o.fl.
- Hlusta á enska tungu og skilja inntak efnisins.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nýta sér enskan bílaorðaforða til að geta lesið texta og skilið upplýsingarnar sem þar er að finna.
- Hlusta á enska tungu og nýta bílaorðaforða til að túlka og skilja inntak.
- Skrifað texta sem nýtist við störf í bíliðngreinum.
- Beita enska tungumálinu til að geta tekið þátt í samtali sem nýtist í störfum í bíliðngreinum.
- Nota orðabækur og orðasöfn til víkka enskan bílaorðaforða.
Námsmat
Samkvæmt reglum skóla.