BÍLP1BB02Z - Bílprófsundirbúningur með áherslu á undirbúning fyrir bóklegt bílpróf
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Þátttaka í umferð er órjúfanlegur hluti af lífi flestra einstaklinga. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera virkir og öruggir þátttakendur í umferðinni. Sömuleiðis að nemendur átti sig á hve mikilvægt það er að vera góður vegfarandi og hversu mikil áhrif þeir geta haft í umferðinni. Unnið verður með efnið á fjölbreyttan hátt og áhersla er lögð á að nemendur læri meðal annars umferðarmerkin, reglurnar og góða umferðarhegðun.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- skyldum og réttindum vegfarenda og það að vera í umferðinni krefst fullrar athygli
- umferðarmerkjum og umferðarreglum
- þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera góður vegfarandi í samfélagi við aðra
- hversu mikil áhrif vegfarendur geta haft í umferðinni
- umburðarlyndi, tillitssemi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í umferðinni
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja skyldur sínar og réttindi í umferðinni
- þekkja umferðarmerkin og hvað þau þýða
- þekkja algengustu umferðarreglur
- meta hættur í umferðinni og hvað á að gera þegar eitthvað kemur upp á
- efla sjálfsmynd sína sem athugull, umburðarlyndur og tillitssamur vegfarandi
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- verða virkur, ábyrgur og sjálfstæður vegfarandi í umferðinni
- uppfylla skyldur sínar og réttindi í umferðinni
- meta hættur í umferðinni á réttan hátt
- nýta sér umferðarmerki og umferðarreglur
- eiga góð samskipti við aðra í umferðinni