Fara í efni

Viðskipta- og hagfræðibraut (VHB)

Brautarlýsing

Viðskipta- og hagfræðibraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna þekkingu á sviði viðskipta- og hagfræðigreina. Auk kjarnagreina er lögð áhersla á viðskipta- og hagfræðigreinar s.s. bókfærslu, hagfræði og stjórnun. Brautin er góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í háskóla í viðskiptafræðum, hagfræði og skyldum greinum.

Nánari upplýsingar um brautina er hægt að nálgast hér.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði er hægt að nálgast hér.

Námið

Viðskipta- og hagfræðibraut er bóknámsbraut og nám og kennsla fer fyrst og fremst fram í skólanum. Nemendur taka bókfærslu og hagfræði í kjarna og geta síðan valið hvaða greinum þeir vilja sérhæfa sig í. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.

Annarplan

Greinar

1.önn

2.önn

3.önn

4.önn

5.önn

6.önn

 

Danska     DANS2OM05 DANS2LN05      
Enska ENSK2LS05 ENSK2RM05 ENSK3VV05     Enska á 3.þrepi  
Íslenska ÍSLE2HS05 ÍSLE2KB05   Íslenska á 3.þrepi   Íslenska á 3.þrepi  
Stærðfræði STÆF2AM05   STÆF2LT05 STÆF2JG05 STÆF3FD05 STÆF3ÖT05  
Heilsa og lífstíll HEIL1HH04 HEIL1HD04          
Lífsleikni LÍFS1SN02 LÍFS1SN01          
Menningarlæsi   MELÆ1ML05          
Fjármálalæsi LÍFS1FN04            
Náttúrulæsi / landafræði NÁLÆ1UN05 NÁLÆ2AS05          
Lokaverkefni           LOVE3SR05  
Bókfærsla   BÓKF1DH05 BÓKF2FV05        
Hagfræði       HAGF2RÁ05 HAGF2ÞE05    
Viðskiptagreinar VIÐS2AV03   VIÐS2PM05 VIÐS3SS05 VIÐS1VV05    
Viðskiptagreinaval     valáfangi 5e valáfangi 5e   valáfangi 5e  
Vöruhönnun         HÖNN3VS05    
3.tungumál     3. tungumál 3. tungumál 3. tungumál    
Hreyfing       Hreyfing   Hreyfing  
Óbundið val         10 einingar 5 einingar  
Samtals einingar: 33 30 35 36 35 31 200
Getum við bætt efni síðunnar?