Fara í efni

Lög foreldrafélags VMA

Á kynningarfundi með foreldrum sem haldinn var í skólanum þann 22. september 2005 var stofnað Foreldrafélag VMA. Markmið félagsins er að vera sterkur málsvari nemenda og gæta hagsmuna þeirra bæði innan skólans og utans.

 Lög félagsins eru eftirfarandi:

Félagið heitir Foreldrafélag VMA.   Heimili félagsins og varnarþing er í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Félagsmenn eru foreldrar og forráðmenn nemenda VMA, nema þeir sem tilkynna að þeir óski ekki aðildar að félaginu.

Tilgangur félagsins og markmið eru:

  • Að efla samstarf milli foreldra um málefni sem varða velferð, menntun og þroska nemenda.
  • Að vera vettvangur samstarfs og samráðs foreldra og forráðamanna nemenda.
  • Að tryggja gott samstarf foreldra og forráðamanna , nemendafélaga og starfsfólks skólans.
  • Að skapa farveg fyrir samskipti við stjórnendur skólans um málefni og hagsmuni ólögráða nemenda sérstaklega bæði gagnvart námsaðastæðum og þjónustu af hálfu skólans.
  • Að styðja heimili og skóla í að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði.

Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn á fyrstu vikum skólaárs og helst í tengslum við kynningardaga á vegum skólans.   Auglýsa skal aðalfundinn með viku fyrirvara með að minnsta kosti einni opinberri auglýsingu og í útsendum gögnum frá skólans hálfu. 

Stjórn:  Á aðalfundi skal kosin fimm manna stjórn og þrír til vara, til eins árs í senn.   Skal formaður kosinn beinni kosningu, en stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti.   Stjórn stýrir starfi félagsins milli aðalfunda. Henni
ber að halda gerðabók og kynna störf sín m.a. með miðlun fundargerða og annarra upplýsinga í gegn um heimasíðu skólans.  Einfaldur meirihluti ræður úrslitum við atkvæðagreiðslu og skal meirihluti stjórnarmanna vera viðstaddur afgreiðslu mála.

Stjórn félagsins hefur umboð til að kalla til almennra foreldrafunda um einstök málefni, en ávallt skal hafa samráð við skólameistara um slíka fundarboðun.  Stjórnendum og starfsmönnum skólans skal heimilt að sækja foreldrafundi sem haldnir eru í nafni félagsins.

Stjórn félagsins er heimilt að taka við styrkjum og beita sér fyrir fjáröflun í þágu félagsins en er ekki heimilt að innheimta félagsgjöld.   Heimilt er að stofna styrktarsjóð Foreldrafélags VMA, en setja skal slíkum sjóði reglugerð sem staðfest er af aðalfundi félagsins.   Stjórn leitar samkomulags við skólameistara varðandi varðveislu gagna foreldrafélagsins, aðstöðu fyrir fundahöld og aðgang að nafnalistum, útsendingu gagna, upplýsingamiðlun á heimasíðu og aðra þætti er varða samskipti við foreldra almennt.

Lögum þessum má breyta á lögmætum aðalfundi og skulu tillögur til lagabreytinga berast stjórn a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund. Geta skal lagabreytinga í fundarboði  og skal helmingur fundarmanna greiða löglega uppborinni breytingartillögu atkvæði til að hún teljist samþykkt.

Endurskoðað 4. október 2016

Getum við bætt efni síðunnar?