Fara í efni

Viðbrögð vegna gosmengunar

  • Ef loftmengun mælist mikil á Akureyri munu skólastjórnendur fara að tilmælum almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra eða Landlæknisembættisins ef þeir aðilar gefa út viðvaranir. 
  • Komi til þess að skólanum verði lokað munu upplýsingar um það birtast á heimasíðu skólans.
  • Að öllu jöfnu mun kennsla fara fram eftir stundatöflu þótt Almannavarnir gefi út viðvörun um hátt magn gosefna á svæðinu. Setji Almannavarnir á útgöngubann gildir það að sjálfsögðu um skólastarf. Séu nemendur óvissir um kennslu í skólanum hafa þeir samband við skrifstofu skólans í síma 464-0300.
  • Séu gildi gosmengunar það mikil að mengunin hafi áhrif á einstaklinga sem eru viðkvæmir fyrir áhrifum hennar s.s. vegna asma eða annarra öndunarfærasjúkdóma, meta þeir sjálfir hvort þeir koma í skólann. Nemendur og foreldrar tilkynna fjarveru nemenda til skrifstofu skólans. Starfsmenn tilkynna forföll til skrifstofu eða í gegnum Innu. 
  • Ef send er viðvörun frá Almannavörnum um hátt magn brennisteinsdíoxíðs (SO2) og það mælist meira en 2000 μg/m3 þá fellur niður kennsla í Íþróttahöllinni. Jafnframt verður slökkt á loftræsingu í skólanum. Þegar slökkt er á loftræstingu í skólanum kólnar innanhúss (ef kalt er í veðri) á u.þ.b. 3-4 tímum. Kennslu verður þá haldið áfram og ástand metið eftir því sem líður á daginn. Kennsla getur orðið með breyttu sniði ef slökkt er á loftræstingu en ekki er gert ráð fyrir að kennsla falli niður nema tilkynning um það komi frá skólameistara. Tilkynningar verða settar á heimasíðu skólans og nemendur og starfsfólk látið vita. Ef slökkt er á loftræstingu verður hurðum milli A-, B-, C- og D-álma læst (þ.e. gönguleið utandyra). Kennarar sjá um að loka öllum gluggum í vinnurýmum sínum og kennslustofum ef þeir eru við kennslu. Umsjónarmaður fasteigna sér um að hækka hitastig á ofnum. 

 Á heimasíðum ýmissa aðila má fá frekari upplýsingar um gosmengun, áhrif hennar á einstaklinga og viðbrögð við henni.

 25. nóvember 2020

Getum við bætt efni síðunnar?