Fara í efni

Umsóknarfrestur um fjarnám til og með 8. janúar

Frestur til að sækja um fjarnám í VMA á vorönn 2024 rennur út nk. mánudag, 8. janúar.
Frestur til að sækja um fjarnám í VMA á vorönn 2024 rennur út nk. mánudag, 8. janúar.

Eins og komið hefur fram hófst kennsla í dagskóla í VMA í gær, 4. janúar, en kennsla fjarnámsnemenda hefst að rúmri viku liðinni, 15. janúar. Forinnritun fjarnemenda á haustönn 2023 til áframhaldandi náms á vorönn var í október sl. en enn er möguleiki á að sækja um að sitja fjarnámsáfanga á vorönn, umsóknarfresti lýkur nk. mánudag, 8. janúar. 

Umsóknarfresti í meistaraskólann lauk 1. nóvember sl. og verður unnið úr biðlistum núna við upphaf vorannar.