Opið fyrir umsóknir um nám í VMA á haustönn 2024
Opið er fyrir innritun í VMA á haustönn 2024.
Innritun nemenda úr 10. bekk grunnskóla stendur yfir til 8. júní en innritun eldri nemenda lýkur 31. maí nk. Sótt er um í gegnum innritunarvef Miðstöðvar menntunar og þjónustu, innritun.is.
Allar frekari upplýsingar um innritun má finna hér á vef VMA og hjá Miðstöð menntunar og þjónustu.
Einnig veita náms- og starfsráðgjafar skólans upplýsingar:
Svava Hrönn Magnúsdóttir – svava.h.magnusdottir@vma.is
Helga Júlíusdóttir – helga.juliusdottir@vma.is
Brautarstjórar námsbrauta skólans eru einnig fúsir að veita upplýsingar.
Hér er gagnleg kynning á starfinu og námsframboði í VMA en annars er vísað til frekari upplýsinga um námið og námsbrautir hér á heimasíðunni.
Nemendur sem hafa hug á að vera á heimavist þurfa að sækja um á www.heimavist.is