Fara í efni

Tölvubúnaður úr VMA fær framhaldslíf í Ecole ABC de Bobo

VMA-tölvurnar ganga í endurnýjun lífdaga í tölvustofu í Ecole ABC do Bobo skólanum í Bobo-Diolasso.
VMA-tölvurnar ganga í endurnýjun lífdaga í tölvustofu í Ecole ABC do Bobo skólanum í Bobo-Diolasso.

Adam Ásgeir Óskarsson, fyrrverandi kennari og kerfisstjóri í VMA, kom í liðinni viku til Íslands eftir um hálfs mánaðar dvöl í Burkina Faso í Afríku. Þar vann hann ásamt fleirum að því að setja upp tölvbúnað í skóla í Bobo Dioulasso, sem áður var notaður í VMA.

Þetta var mjög góð og gefandi ferð og okkur tókst að gera það sem lagt var upp með, að skipta út tölvum í tölvustofu skólans og nettengja þær og fá þær til að virka vel saman á innra neti skólans. Hins vegar er internetsambandið, sem byggir á örbylgjutækni, eftir sem áður slitrótt. Það er framtíðarverkefni að finna mögulega lausn á því, segir Adam. 

Fyrir um tveimur árum var tölvubúnaður í VMA endurnýjaður og fartölvur komu í stað borðtölva og skjáa. Fyrir rösku ári fór Adam fyrst til Bobo Diolasso, sem er næststærsta borg Burkina Faso í vesturhluta Afríku, á vegum ABC barnahjálpar á Íslandi og komst að raun um að í skólanum Ecole ABC de Bobo væri rík þörf fyrir betri tölvubúnað fyrir nemendur. Þar voru 15-20 ára gamlar Windows tölvur sem höfðu fyrir löngu sungið sitt síðasta. Adam gekk því í málið og fékk VMA til liðs við sig sem lét honum í té um hundrað HP- og Dell-tölvur sem hafði verið skipt út. Adam  stækkaði í þeim minnið og uppfærði þær að öðru leyti. Síðan var allur tölvubúnaðurinn sendur sl. vor í gámi til Burkina Faso til uppsetningar. Til stóð að hann yrði kominn til Burkina Faso í október og í þeirri trú fór Adam þá til Bobo Diolasso. En af ýmsum ástæðum tafðist að gámurinn skilaði sér. Hann kom loks á áfangastað í nóvember sl. Því fór Adam og fimm aðrir Íslendingar til Burkina Faso í byrjun febrúar -  hjónin Jóhanna S. Norðfjörð og Haraldur Pálsson, Aðalgeir Sigurðsson, Jón Sverrir Friðriksson - öll frá Akureyri - og Magnús Kristinsson rafeindavirki hjá Origo Lausnum í Reykjavík.

Adam og Magnús unnu baki brotnu við að koma tölvubúnaðinum fyrir á sínum stað við mikla gleði og ánægju nemenda og kennara. Í tölvustofunni eru nú 64 nettengdar tölvur, skjávarpi o.fl. Einnig voru settar upp VMA-tölvur á heimavist fyrir stúlkur í svokölluðu Líflandi sem ABC barnahjálp stendur að. Í Líflandi er starfrækt svína- og hænsabú auk viðamikillar ræktunar á mat.

Með þessum nýja tölvubúnaði í nettengdu tölvuveri skólans opnast fjölmargir nýir möguleikar í kennslu sem Adam segir að kennarar þar eigi eftir að fikra sig áfram með. Þetta er mikil og jákvæð breyting fyrir skólastarfið, er óhætt að segja.

Hér má í myndum sjá þau umskipti sem urðu í tölvustofunni, gömlu tölvunum var skipt út fyrir tölvurnar sem koma úr VMA og fá nýtt hlutverk í Burkina Faso.

Adam vill koma á framfæri þökkum til VMA og fleiri fyrirtækja og stofnana sem hafa lagt þessu verkefni lið með tölvum, skjáum, netbúnaði og öðru - Origo Lausna, Sjúkrahússins á Akureyri, MTR - Menntaskólans á Tröllaskaga Sýnar, Vodafone, Gaflara og Tengis. Þá vill hann þakka góðan stuðning Oddfellow-félaga á Akureyri.

Háskólanemar sem höfðu lokið námi á framhaldsskólastigi í Ecole ABC de Bobo skólanum fengu afhentar fartölvur að gjöf frá Vodafone og Sýn. Fyrirtækin gáfu 60 fartölvur til þessa verkefnis. Adam segir að ekki þurfi að hafa um það mörg orð þvílík himnasending tölvurnar eru fyrir háskólanemana því fjárhagslega hafi þeir aldrei möguleika á að eignast slíkan búnað. 

Frá Íslandi voru nemendum einnig færð að gjöf íþróttaföt og íþróttaskór frá íbúum á Suðurnesjum og Rauða krossinum á Akureyri, skólinn fékk að gjöf hljóðfæri til tónlistarkennslu að ógleymdum tveimur nýjum rafsuðuhjálmum sem Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri gaf til skólans og Adam veitti viðtöku áður en haldið var til Burkina Faso. Til þessa hafa þeir ungu piltar sem vinna járnavinnu fyrir skólann notast við sólgleraugu þegar þeir rafsjóða sem getur verið mjög varasamt fyrir augun. Því var mikil gleði ríkjandi þegar piltarnir fengu rafsuðuhjálmana í hendur.

Adam segir nær ómögulegt fyrir okkur hér á norðurhjara að átta sig á aðstæðum sem fólk býr við á þessum slóðum. En gríðarlega ánægjulegt sé að sjá þann árangur sem ABC barnahjálp á Íslandi hafi fengið áorkað með uppbyggingu á þessu skólasamfélagi, sem er frá leikskóla- og upp á framhaldsskólastig. Nemendum hefur verið að fjölga og eru nú á tólfta hundrað. Þar af njóta sem næst sjö hundruð nemendur í skólanum fjárhagslegs stuðnings stuðningsforeldra á Íslandi og það sem upp á vantar fjármagnar ABC barnahjálp. Stærsta verkefnið framundan er stækkun húsnæðis fyrir framhaldsskólann.

Hinrik Þorsteinsson og Guðný Ragnhildur Jónasdóttir hafa af hálfu ABC barnahjálpar lengi stýrt Ecolo ABC de Bobo skólanum og uppbyggingarstarfinu þar í samstarfi við heimafólk. Á meðan Adam og hinir Íslendingarnir voru í Burkina Faso komu Hinrik og Guðný og settu formlega punktinn yfir i-ið í áralöngu stjórunarstarfi sínu við skólann. Við stjórnartaumunum tóku hjónin Jóhanna S. Norðfjörð og Haraldur Pálsson.