Fara í efni

Síðasti kennsludagur haustannar

Síðasti kennsludagur haustannar samkvæmt stundaskrá er í dag, föstudaginn 8. desember.
Síðasti kennsludagur haustannar samkvæmt stundaskrá er í dag, föstudaginn 8. desember.

Sem endranær flýgur tíminn áfram og allt í einu er önnin úti - eða því sem næst. Síðasti kennsludagur á þessari haustönn í VMA er í dag, 8. desember.

Í næstu viku verða lokapróf í áföngum þar sem kennarar eru með slíkt og einnig verða lokaskil verkefna í öðrum áföngum. Lokaskil á námsmati og sýnidagur námsmats verður þriðjudaginn 19. desember. Brautskráning verður síðan fimmtudaginn 21. desember kl. 13 í Hofi.