Fara í efni

Síðari sýningarhelgi á Dýrunum - þrjár sýningar um helgina

Hemmi Ósk er hér í hlutverki hins músíkalska Lilla klifurmúsar.
Hemmi Ósk er hér í hlutverki hins músíkalska Lilla klifurmúsar.

Seinni sýningarhelgi á Dýrunum í Hálsaskógi í uppfærslu Leikfélags VMA er núna um helgina og verða þrjár sýningar í Gryfjunni, kl. 20 í kvöld, föstudag, og kl. 14 á morgun og á sunnudag.

Um síðustu helgi voru fjórar sýningar. Frumsýning var sl. föstudagskvöld og síðan var ein sýning á laugardag og önnur á sunnudag kl. 14. Aukasýning var kl. 18 sl. sunnudag þegar Leikfélag VMA bauð langveikum börnum í Hetjunum á Akureyri og fjölskyldum þeirra á sýningu.

Fullt var á öllum sýningum um síðustu helgi og viðtökur framúrskarandi góðar. Það eru því síðustu forvöð til þess að trygga sér miða og eiga skemmtilega stund í Gryfjunni með krökkunum í Leikfélagi VMA.

Miðasala á sýningarnar um helgina eru hér á Tix.is.