Fara í efni

Pylsur eru ekki bara pylsur!

Rúnar Ingi Guðjónsson kjötiðnaðarmaður leiðbeinir nemendum í pylsugerðinni.
Rúnar Ingi Guðjónsson kjötiðnaðarmaður leiðbeinir nemendum í pylsugerðinni.

Svo einfalt er málið ekki að pylsur séu bara pylsur! Pylsugerð er ákveðin listgrein í kjötiðnaði og víða um lönd er hún í hávegum höfð og úrvalið er lyginni líkast. Enda er það svo að hægt er að fara óteljandi leiðir í að búa til pylsur. Hugmyndafluginu eru engar skorðar settar í pylsugerð.

Rúnar Ingi Guðjónsson, kjötiðnaðarmaður og gæðafulltrúi í Kjarnafæði-Norðlenska, kann eitt og annað fyrir sér í pylsugerð og hann miðlaði úr viskubrunni sínum í vikunni til nemenda í 2. bekk í matreiðslu í VMA. Nemendur þreifuðu sig áfram með ólíkar uppskriftir í pylsugerð þar sem grunnhráefnið var úr ýmsum áttum:  svínakjöt, lambakjöt, kalkúnn og kjúklingur. Fitan er mikilvæg, um það bil fimmtungur af hrærunni. Síðan er notað salt og allskonar krydd og eilítið kartöflumjöl til þess að líma hræruna vel saman.

Þessar myndir voru teknar af nemendum og kennurum þeirra, Rúnari Inga, og Ara Hallgrímssyni, þegar unnið var að pylsugerðinni sl. þriðjudag.

Fjölbreyttir pylsuréttir voru síðan á borð bornir fyrir gesti í gær. Hilmar Friðjónsson mætti með myndavélina.