Fara í efni

Opið hús í kvöld á listnáms- og hönnunarbraut

Opna húsið á listnáms- og hönnunarbraut verður kl. 19:30 til 21:00 í kvöld, þriðjudagskvöld.
Opna húsið á listnáms- og hönnunarbraut verður kl. 19:30 til 21:00 í kvöld, þriðjudagskvöld.

Enn ein önnin er á lokametrunum. Síðasti kennsludagur vorannar 2024 verður nk. mánudagur, 13. maí, og síðan taka við námsmatsdagar.

Einn af föstum liðum undir lok hverrar annar er að nemendur og kennarar á listnáms- og hönnunarbraut standi fyrir opnu húsi þar sem gefur að líta fjölbreyttan þverskurð af því sem nemendur hafa verið að fást við á önninni. Til viðbótar við það sem nemendur á listnáms- og hönnunarbraut hafa unnið í vetur verður sýnd listsköpun af ýmsum toga sem nemendur á starfs- og sérnámsbraut skólans hafa unnið núna á vorönn.

Opna húsið verður í húsakynnum listnáms- og hönnunarbrautar í kvöld, þriðjudaginn 7. maí kl. 19:30 til 21:00. Allir eru hjartanlega velkomnir. Gengið inn að norðan.