Fara í efni

Opið hús á listnáms- og hönnunarbraut

Í gær var unnið í öllum hornum á listnáms- og hönnunarbraut við að ljúka við og hengja upp verk sem …
Í gær var unnið í öllum hornum á listnáms- og hönnunarbraut við að ljúka við og hengja upp verk sem verða til sýnis í kvöld - bæði í myndlist og textíl.

Eins og venja er til við annarlok bjóða nemendur og kennarar á listnáms- og hönnunarbraut öllum að koma á opið hús í húsakynnum brautarinnar á efri hæð, gengið inn að norðan, í kvöld, fimmtudag, kl. 19:30 til 21:00.

Síðustu dagar hafa verið annasamir á listnáms- og hönnunarbraut eins og öðrum brautum skólans því nemendur keppast við að ljúka við verkefni sín fyrir jólaleyfi. Fjölbreyttur afrakstur vinnu nemenda á listnáms- og hönnunarbraut verður til sýnis á opna húsinu í kvöld. Hér gefur að líta lítið brot af þeim verkum sem verða á sýningunni.