Fara í efni

Árshátíð VMA 7. mars

Það verður mikið um dýrðir á árshátíð VMA, sem verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudagskvöldið 7. mars nk. Þema kvöldsins er Hollywood glamúr. Það er því spurning um að kíkja í fataskápinn og sjá hvað er til!

Veislustjórar kvöldsins verða Aron Mola (Aron Már Ólafsson) og Arnar Þór Ólafsson, sem hafa komið víða við. Meðal annars hafa þeir verið með hlaðvarpið Ólafssynir í Undralandi.

Um tólistina sjá margir þekktir tónlistarmenn – Háski (Darri Tryggvason), Diljá, Séra Bjössi, Sprite Zero Klan og PATRI!k.

Húsið verður opnað kl. 18 og borðhald hefst kl. 19. Ballið hefst kl. 23. Miðaverð fyrir borðhald og ball er kr. 8.500. Fyrir ballið kostar miðinn kr. 3.000. Allir framhaldsskólanemar eru velkomnir á ballið.

Miðasala er á midix.is