Fara í efni

Annar bekkur í matreiðslu í þriðja skipti

Fyrsti verklegi tími vetrarins í 2. bekk
Fyrsti verklegi tími vetrarins í 2. bekk

Á þessari önn er annar bekkur í matreiðslu kenndur í þriðja skipti í VMA og eru átta nemendur skráðir í námið. Í gær var fyrsti verklegi tíminn undir handleiðslu Theodórs Sölva Haraldssonar matreiðslumeistara og kennara, sem hefur yfirumsjón með öðrum bekknum.

Verkmenntaskólinn á Akureyri er annar tveggja skóla sem bjóða fullt nám í matreiðslu, hinn skólinn er Menntaskólinn í Kópavogi sem er að hluta til sérhæfður skóli í matvælagreinum. Til þess að geta farið í annan bekk í matreiðslu þurfa nemendur að hafa lokið grunndeild matvælagreina og einnig þurfa þeir að vera komnir á námssamning. Öðrum bekknum ljúka nemendur á einni önn og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum geta þeir í framhaldinu innritast í þriðja bekk og í kjölfarið lokið sveinsprófi í matreiðslu. Ari Hallgrímsson, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segir að ef næg þátttaka fáist verði þriðji bekkurinn kenndur á vorönn. Á síðasta skólaári lauk fyrsti hópurinn fullgildu námi í matreiðslu frá VMA.

Theodór Sölvi Haraldsson er matreiðslumeistari og hefur áður kennt öðrum bekk í matreiðslu í VMA. Hann lauk á síðasta skólaári kennsluréttindum frá Háskóla Íslands. Hann segist ekki draga dul á að hann njóti þess að kenna matreiðslu, áhugavert sé að rifja upp fræðin með þessum hætti og miðla kunnáttu til annarra. 

Námið í öðrum bekk er bæði verklegt og bóklegt. Verklegi þátturinn er á mánudögum og þriðjudögum og kennir Theodór hann. Auk hans kennir Ari Hallgrímsson bóklega áfanga. Theodór segir að almennt vinni nemendur til hliðar við námið en hann hvetur þá til þess að gefa náminu gott rými í hinni daglegu stundatöflu, það sé í senn krefjandi, áhugavert og skemmtilegt. 

Theodór segir að í sem stystu máli skiptist verklegi hluti námsins í öðrum bekk í kaldar og heitar æfingar. Þar er vísað til kaldra rétta og heitra. Í öðrum bekknum segir Theodór meiri áherslu á kalda rétti en áherslan sé síðan meiri á heita rétti í þriðja bekknum. Hann segist leggja áherslu á það í kennslunni að undirbúa nemendur frá fyrsta degi í öðrum bekk fyrir sveinsprófið í lok þriðja bekkjar, mikilvægt sé að nemendur tileinki sér strax þau öguðu vinnubrögð sem sé krafist í sveinsprófi.