Fara í efni

Af stafrænni klippingu og huldufólki

Fyrirlesarar dagsins í þriðjudagsfyrirlestrinum í Listasafninu á Akureyri miðla ólíkri reynslu sinni…
Fyrirlesarar dagsins í þriðjudagsfyrirlestrinum í Listasafninu á Akureyri miðla ólíkri reynslu sinni og listsköpun.

Í dag, þriðjudaginn 21. nóvember kl. 17:00-17:40, halda bandaríska myndlistarkonan Zoe Chronis og þýski arkitektinn og myndskreytarinn Rainer Fischer sameiginlegan fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri í röð þriðjudagsfyrirlestra. Þetta er síðasti þriðjudagsfyrirlesturinn á þessu ári en þráðurinn verður tekinn aftur upp í janúar.

Í fyrirlestrinum í dag fjallar Zoe Chronis um stafræna klippingu sem aðeins er hægt að framkvæma með MiniDV upptökuvél. Aðferðina notar hún til að taka upp myndbandsdagbækur þar sem upptaka nýrrar færslu eyðileggur fyrri færslu. Verk hennar fela oft í sér gallaðan myndbandsbúnað og klippingu, sem gerir mörkin milli ásetnings og tilviljunar óskýr. Í fyrirlestrinum fjallar hún einnig um áhrif tilraunakvikmyndagerðar Dziga Vertov, Rose Lowder og Michael Snow.

Rainer Fischer segir frá framvindu vinnu sinnar í gestavinnustofu Listasafnsins þar sem hann hefur dvalið síðustu vikur. Í fyrstu drögum að myndskreyttri skáldsögu fer Rainer í sitt hliðarsjálf, Joseph Otto. Í samtali við hans eigin stöðluðu sköpunarverk týnist Joseph/Rainer milli raunveruleika og sagna af íslensku huldufólki. Sögulok hafa ekki enn verið skrifuð.

Fyrirlesturinn er á ensku og sem fyrr er aðgangur ókeypis. Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnins á Akureyri, listnáms- og hönnunarbrautar VMA og Gilfélagsins.