Fara í efni

Námsmatsdagur

Á námsmatsdegi fellur að öllu jafna niður kennsla samkvæmt stundaskrá. Kennarar geta kallað nemendur til sín ef þeir vilja hitta nemendur t.d. þá sem hafa misst af námsmatsþáttum. Ef kennarar boða nemendur til sín eiga nemendur að sinna því boði hvort sem það er í kennslustund, í viðtal eða til að ljúka námsmatsþætti. Sumar deildir hafa opnar vinnustofur þennan dag sem nemendur geta nýtt til að vinna upp verkefni. Það eru helst nemendur í lotunámi, kvöldskóla eða á námskeiðum sem gætu þurft að mæta í kennslustundir á námsmatsdegi og fá um það upplýsingar frá kennara. Dagskólanemendur mæta ekki í kennslustundir á námsmatsdegi.
Námsmatsdagurinn er til að koma til móts við aukið vægi leiðsagnamats í námi og námsmati, sem hefur breytt verkefnaálagi tengt námsmati meira yfir alla önninna í stað þess að vera einungis í lok annar.