Fara í efni

MARG1HM05(AV) - Hreyfimyndagerð, hljóðvinnsla, myndvinnsla, stafræn ljósmyndun og upptaka

Hljóð og myndbönd

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemendur kynnast grunnatriðum í myndvinnslu, hreyfimyndagerð, hljóðvinnslu og auka skilning sinn á stafrænni ljósmyndun og upptökutækni. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við úrvinnslu skapandi verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast lagskiptri myndvinnslu, lýsingar- og litaleiðréttingu. Þá vinna nemendur með klippiforrit við klippingu á eigin efni en gera jafnframt fjölbreyttar tilraunir með fundið efni t.d. af netinu.

Þekkingarviðmið

  • klippiforritum og stafrænum miðlum fyrir myndband og hljóð
  • vinnuferli við gerð myndbands- og hljóðverka
  • grunnatriðum í stafrænni myndvinnslu
  • grunnatriðum í stafrænni ljósmyndun og upptökutækni
  • grunnatriðum í myndvinnslu og möguleikum myndvinnsluforrita

Leikniviðmið

  • skipuleggja, taka upp og klippa tímatengda miðla og ganga frá til sýningar í viðeigandi forriti
  • taka stafrænar ljósmyndir og vinna með þær í myndvinnsluforritum
  • velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram

Hæfnisviðmið

  • vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum
  • fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?