Fara í efni

HSÝN2FB04(AH) - Sýningar og keppni

Sýningar og keppni

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum eru keppnisgreinar hárfagsins skoðaðar frá ýmsum hliðum og nokkrar þeirra æfðar. Nemendur áfangans eru misjafnlega langt komnir í faginu og er komið til móts við þá þar sem þeir eru staddir í vali á verkefnum. Þeir þjálfast í að rýna í og fara eftir keppnisreglum, dæma verk sín og annarra, undirbúa sig fyrir keppni og keppa. Nemendur skoða hársýningar með gagnrýnum augum, fá að vera þátttakendur í tilfallandi sýningum og skipuleggja að lokum sýningu á eigin verkum og setja hana upp. Þetta er valáfangi sem veitir nemendum aukinn styrk og möguleika á að taka þátt í keppnum hérlendis og erlendis. Áfanginn styrkir einnig nemandann gagnvart ýmsum verkefnum hársnyrtibrautarinnar og veitir honum aukna möguleika á að koma sér á framfæri í faginu.

Þekkingarviðmið

  • ólíkum keppnisgreinum í hári.
  • algengustu reglum í hársnyrtikeppnum.
  • undirbúningi fyrir keppni.
  • hvernig dómur er unninn.
  • hvað einkennir góða hársýningu.
  • skipulagningu sýningar.

Leikniviðmið

  • afla gagna og leita lausna við hönnun og gerð keppnisverkefna.
  • framkvæma valdar keppnisgreinar.
  • beita öguðum og skipulegum vinnubrögðum við undirbúning og framkvæmd keppnisverkefna og sýningar.
  • kynna verk sitt fyrir áhorfendum og lýsa því hvernig það er unnið.

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í keppni.
  • setja upp sýningu.
  • geta unnið innan tímaramma og tekist á við tímapressu.
  • eiga auðveldara með að koma fram og tjá sig um verk sín.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?