Fara í efni

HUGM2HÚ05 - Hugmyndafræði

hönnun, útfærsla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er fjallað um aðferðir til að efla skapandi hugsun, leikni í þróun hugmynda og hæfni til að koma þeim á framfæri. Notaðar eru ýmsar aðferðir við að skrásetja hugmyndir og þróa þær í gegnum leik og tilraunir. Lögð er áhersla á að skoða margvíslegar útfærsluleiðir, þar sem nemendur vinna bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Rík áhersla er lögð á mikilvægi ímyndunaraflsins í sköpunarferlinu og unnið með ólíkar aðferðir til að virkja það. Áhersla er lögð á umræður um verkefnin og að nemendur læri hver af öðrum.

Þekkingarviðmið

  • hugkortum, hugstormun, spuna, þemavinnu og synektískri aðferðafræði
  • markvissum leiðum til að halda utan um hugmyndir sínar og úrvinnslu þeirra
  • þýðingu fjölbreyttrar gagnasöfnunar við þróun hugmynda
  • hugsanaferlinu frá hugmynd til listrænnar sköpunar
  • eigin persónulegu leiðum við hugmyndavinnu
  • samhenginu á milli hugmyndar, efnis, rýmis, tækni, aðferða og niðurstöðu
  • möguleikum rýmis, lita, ljóss, hljóðs, tækja og tóla við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda

Leikniviðmið

  • vinna ferlið frá hugmynd til afurðar
  • beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda
  • sjá skapandi möguleika í mistökum sem hann gerir
  • skýra hugmyndir sínar á munnlegan, skriflegan og myndrænan hátt
  • beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið
  • koma auga á óvænt samhengi og gera það sýnilegt
  • beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum við framsetningu eigin hugmynda

Hæfnisviðmið

  • þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt í gegnum tilraunir, fræðilegar aðferðir og eftir markvissu þróunarferli
  • nýta margvíslega möguleika við úrvinnslu og framkvæmd hugmynda
  • nýta sér skipulegar rannsóknar aðferðir til þess að skerpa á og halda utan um hugmyndir, bæta úrvinnslu og persónuleg efnistök í skapandi starfi
  • vinna hugmyndavinnu í hóp og bera virðingu fyrir öðrum og skoðunum annarra.
  • kynna hugmyndir sínar á fjölbreyttan hátt rökstyðja eigið verk, taka gagnrýni og gagnrýna aðra á jákvæðan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?