Fara í efni

EFNA3VC04(AV) - Efnafræði olíu og vökva

Efnafræði olíu og vökva

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLF2VE04
Nemendur kynnast olíum og olíuvörum sem notaðar eru við rekstur aflvéla skipa, s.s. brennsluolíu, smurolíu, smurefni og leysiefni. Nemendur þjálfast í notkun mælitækja og efna til að gera prófanir á smurolíu, kælivatni og ketilvatni og afla þannig upplýsinga til að leggja mat á ástand og gæði vökvanna. Skoðað er bruna- og blossamark olíu, seigjumælingar á olíu, mælingar á basatölu olíu og vatnsmagni í olíu. Fjallað er um fast og fljótandi eldsneyti úr kolefnissamböndum. Vinnsla á olíu er kynnt og mælikvarðarnir oktantala, setantala og dísilindex um brunaeiginleika eldsneytis. Einnig er fjallað um helstu eiginleika ketil- og kælivatns, hvað þarf að varast og hvers vegna.

Þekkingarviðmið

  • eldsneytisnotkun, orkutapi og orkunýtingu.
  • eldsneytisgerðum, olíutegundum og staðbundnum einkennum olíu og oktantölu, setantölu og dísilindexi.
  • fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna.
  • tæringarvörnum ferskvatns- og sjókerfa.
  • útfellingum og áhrifum þeirra.
  • helstu eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla.
  • hvernig afla má upplýsinga um ástand smurolía og smurefna með mælitækjum.
  • hvernig má greina ástand kæli- og ketilvatns og bregðast við frávikum.
  • hvernig má setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi.

Leikniviðmið

  • greina og meta ástand eldsneytis, smurefna og kælivökva út frá niðurstöðum sérhæfðra prófana.
  • gera mælingar og tilraunir með smurefni og kælivökva og skrá niðurstöður skilmerkilega.
  • halda utan um mæligögn á öruggan máta.

Hæfnisviðmið

  • útskýra staðbundin einkenni olíu og gera grein fyrir vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess.
  • taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga gefa tilefni til.
  • meta upplýsingar, t.d. samanburð mældra gilda við eðlilegt eða æskilegt ástand.
  • setja fram efni og niðurstöður verkefna í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit og ályktanir sem dregnar eru af niðurstöðum mælinga og tilrauna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?