Fara í efni

SÆNS2NB05 - Sænska fyrir sjálfstæðan notanda I

menning, skilningur og málnotkun I

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á lestur fjölbreyttra texta til að auka lesskilning og orðaforða. Undirstöðuatriði sænskrar málfræði eru rifjuð upp og þau æfð með gagnvirkum æfingum á netinu, rituðu og mæltu máli. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvist auk þess sem nemendum er leiðbeint í notkun orðabóka og annarra hjálpargagna í tungumálanáminu.

Þekkingarviðmið

  • almennum orðaforða sem tengist efni áfangans
  • helstu málfræðiatriðum í sænsku og nýtt sér það bæði í rituðu og mæltu máli
  • helstu einkennum sænskrar tungu í framburði og rituðu máli
  • notkun hjálpargagna s.s. orðabóka og leiðréttingarforrita á netinu
  • samspili og þróun norðurlandamálanna

Leikniviðmið

  • lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans
  • skilja talað mál um kunnugleg og minni kunnugleg efni
  • tjá sig um valin málefni og geti tekið þátt í samræðum
  • rita texta byggða á efni áfangans og gera orðalag texta að sínu
  • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Hæfnisviðmið

  • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, t.d. fréttir og sænska sjónvarpsþætti og nýta sér á mismunandi hátt
  • nýta grundvallaratriði sænskrar málfræði í ritun og tali
  • skrifa læsilega texta um ýmis málefni og nýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á
  • nota viðeigandi orðalag í samskiptum
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?