Fara í efni

ÚTRE4SD04(BS) - Rekstur útgerðarfyrirtækja og viðhald skipa

Rekstur útgerðarfyrirtækja og viðhald skipa

Einingafjöldi: 4
Þrep: 4
Forkröfur: Að hafa lokið C réttindum vélstjórnar
Í þessum áfanga kynnast nemendur grunnatriðum í rekstrarhagfræði. Nemendur öðlast skilning á samhengi tekna og kostnaðar og læra að þekkja helstu kennitölur og hugtök í rekstri fyrirtækja. Nemendur öðlast þekkingu og færni við að greina tekjumyndun og kostnaðarþætti í rekstri útgerðarfyrirtækja, geta byggt upp einfalt verkbókhald, og greiðsluáætlanir með því að leggja mat á einstaka kostnaðar- og tekjuliði í rekstraráætlun, verða færir um að gera framlegðarútreikninga og skilja undirstöðuatriði markaðsverðmyndunar sjávarafurða. Nemendur læra að gera rekstraráætlun fyrir skip, kostnaðaráætlanir við rekstur skipa og viðhald.

Þekkingarviðmið

  • grunnþáttum rekstrarhagfræðinnar og hugtökum sem notuð eru í henni.
  • samhengi milli tekna og kostnaðar og mun á beinum og óbeinum kostnaði.
  • helstu kostnaðar- og tekjuliðum við útgerð skipa og aðferðum við að leggja mat á þessa liði.
  • helstu kennitölum í rekstri fyrirtækja og þeim upplýsingum sem draga má af þeim.
  • forsendum um frjálsan markað, ófullkomna samkeppni og einokun.
  • helstu þáttum og uppbyggingu rekstrarbókhalds, verkbókhalds og kostnaðareftirlits.
  • reglubundnum kostnaði við viðhald skipa.
  • kostnaði við slipptöku skipa (slippar og dokkur).
  • uppbyggingu útboða og tilboða við smíði, breytingar og viðhald skipa.

Leikniviðmið

  • greina tekjumyndun og kostnaðarþætti.
  • gera framlegðarútreikninga.
  • byggja upp einfalt verkbókhald.

Hæfnisviðmið

  • gera rekstraráætlun og greiðsluáætlanir.
  • greina kostnað við slipptöku skipa (slippar og dokkur).
  • lesa úr útboðsgögnum og tilboðum við smíði, breytingar og viðhald skipa.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?