Fara í efni

STÞM2MA25 - Starfsþjálfun 2

Starfsþjálfun MT

Einingafjöldi: 25
Þrep: 2
Forkröfur: STÞM1MA25
Starfsþjálfun matartæknanema á 2. þrepi eru 25 feiningar. Áfanginn er reynslutími nemans á viðurkenndum starfsnámsstað og stendur yfir í 12,5 vikur. Á tímabilinu öðlast nemandinn aukna þekkingu, leikni og hæfni í störfum matartækna undir leiðsögn fagaðila. Í áfanganum þjálfar nemandinn undirbúning og vinnslu á almennu fæði og helstu gerðum af sérfæði þar með talið vegan fæði. Jafnframt að vinna eftir gæðastöðlum vinnustaðarins um innra eftirlit, HACCP. Kennari, leiðbeinandi og yfirmaður bera sameiginlega ábyrgð á starfsþjálfuninni. Nemandi skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi starfsnámsstaður setur sínu starfsfólki.

Þekkingarviðmið

  • vinnuskipulagi fyrir eigin vinnu og mikilvægi vinnuskipulags á vinnustað, undirbúningi og grunnmatreiðslu
  • notkun á tölvukerfi vinnustaðar sem heldur utan um hráefni, uppskriftir, matseðla, innkaup
  • matreiðslu heitra aðal– og eftirrétta
  • matreiðslu ákveðins sérfæðis, s.s. grænmetisfæði, veganfæði, ofnæmis- og óþolsfæði
  • útbúa orku- og próteinþétt fæði
  • útbúa fljótandi og þykk fljótandi fæði
  • skömmtun á mat og að fylgja skammtstærðum vinnustaðar
  • vinnu við frágang og þrif á vinnustað
  • kröfum um hitastig við móttöku, meðhöndlun matvara og viðbrögð við frávikum
  • kröfum um hitastig við móttöku, meðhöndlun matvara og viðbrögð við frávikum
  • mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit: HACCP

Leikniviðmið

  • undirbúa vinnuskipulag og verklýsingar
  • matreiða allt almennt fæði
  • matreiða ákveðnar gerðir sérfæðis, s.s. grænmetisfæði, veganfæði, ofnæmis- og óþolsfæði
  • orku- og próteinbæta
  • skammta mat samkvæmt skömmtunarformi vinnustaðar
  • vinna eftir gæðastöðlum vinnustaðar

Hæfnisviðmið

  • útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis og sérfæðis
  • skipulaggja verkferla og verkefnalista og vinna eftir þeim
  • meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
  • sýna fram á ábyrgð í umgengni á vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?