Fara í efni

RRVV3VR05(AV) - Rafvélar 2

viðgerðir raftækja og bilanagreining

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RRVV2RS05
Áfanginn er sá hluti rafvélakennslunar sem kenndur er á verkstæði með aðstöðu til að taka sundur tæki og til viðgerða minni og stærri rafvéla og raftækja. Í áfanganum er lögð áhersla á undirstöðuatriði er varða jafnstraumsvélar og einfasa riðstraumshreyfla í hinum ýmsu raftækjum. Einnig er lögð áhersla á viðgerðir og viðhald þriggjafasa rafvéla s.s. leguskipti  og ýmsar mælingar. Þá er lögð áhersla á að nemendur æfist í að nota mælitæki og verkfæri rafiðnaðarmanna, greina bilanir og gera við raftæki og venjist við að taka tillit til öryggissjónarmiða við viðgerðir svo og kostnaðarmat. Gerð er grein fyrir þýðingu merkiskilta á vélum og tækjum. Farið er yfir öryggisatriði í umgengni á spennum , bæði stórum og smáum.

Þekkingarviðmið

  • lögum og reglugerðum
  • öryggiskröfum sem gerðar eru til laustengdra tækja
  • merkingum rafbúnaðar

Leikniviðmið

  • beita verkfærum og mælitækjum er leiða í ljós ástand rafvéla og raftækja
  • hafa gott vald á vélum og verkfærum sem notuð eru í störfum rafiðnaðarmanna
  • hafa skilning á hættum er fylgi því að umgangast raftæki

Hæfnisviðmið

  • bilanagreina og meta ástand hinna ýmsu rafvéla og tækja
  • annast viðhald og uppsetningu rafbúnaðar
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?