Fara í efni

VSMV2NT03(AV) - Smáspennuvirki 2

hönnun, netkerfi, tengingar, uppsetning

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: VSMV1TN03
Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.

Þekkingarviðmið

  • íhlutum tölvunetkerfa, skilji tilgang þeirra og virkni
  • OSI og TCP/IP líkönunum
  • IP vistföngum
  • hugtökum og skammstöfunum sem notaðar eru í tölvunetkerfum
  • nethögun (topology) tölvulagna

Leikniviðmið

  • þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja
  • meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli
  • útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá
  • rekja bilanir í netsamböndum

Hæfnisviðmið

  • hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi
  • velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi
  • setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi
  • stilla beina (routers) með grunnstillingum
  • finna bilanir í tölvunetkerfi
  • ráða yfir nægum orðaforða til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn
  • nýta tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?