Fara í efni

VSMV1TN03(AV) - Smáspennuvirki 1

netkerfi, tölvusamsetningar

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í þessum áfanga kynnast nemendur samsetningu einkatölvu og aðferðum við bilanagreiningu. Lögð er áhersla á virkni undirstöðueininga einkatölvu, s.s. örgjörva, rásasett, tengiraufar, minni, einstakar stýringar á móðurborði, hlutverk BIOS, diskastýringar, inn- og úttakstengi, netkort ásamt stillingum fyrir internetið. Helstu einingar staðarnets og víðnets eru kynntar. Tölva er sett saman frá grunni og gengið frá uppsetningu á algengu stýrikerfi og notendahugbúnaði. Tölvan er í lokin tengd á staðarnet skólans og stillt fyrir internetið. Áhersla er lögð á að nemendur fái innsýn í samvirkni helstu jaðartækja sem notuð eru með einkatölvum. Þá er fjallað um stöðurafmagn og meðferð rafíhluta. Í þessum áfanga kynnast nemendur tölvunetkerfum. Farið er í uppbyggingu og virkni heimilis netkerfa. Nauðsynlegir íhlutir skoðaðir og hvernig einfaldur netbúnaður vinnur saman.

Þekkingarviðmið

  • helstu byggingarhlutum tölvu og hlutverki þeirra
  • helstu stýrikerfum
  • algengum notendaforritum
  • helstu einingum í einföldu netkerfi

Leikniviðmið

  • setja saman tölvu úr byggingarhlutum sínum
  • forsníða harðan disk
  • setja upp stýrikerfi á tölvu
  • setja upp einfalt netkerfi

Hæfnisviðmið

  • bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu
  • leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastagetu tölvu
  • bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í netkerfi
  • leggja mat á afkastagetu í einföldu netkerfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?