Fara í efni

RÖKR3IS05(AV) - Rökrásir 1

iðntölvur, rökhugtök, stafræn tækni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2MJ05
Nemandinn öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fær þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Hann þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemandinn öðlast þekkingu og skilning á hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Kynnist hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fær þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum stafrænnar tækni
  • grunnrökrásahliðum, OR, AND og NOT
  • rökrásahliðum NOR og NAND
  • hvernig hægt er að nota NOR og/eða NAND hlið til að fá fram grunnvirknina, OR, AND og NOT
  • mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal
  • samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL)
  • grunnskipunum í C og C++ forritun

Leikniviðmið

  • lesa virkni einfaldra rökrása
  • hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
  • bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið
  • tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum
  • teikna stigarit eftir: a) formúlu, b) segulliðarás c) textalýsingu
  • skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum
  • nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása

Hæfnisviðmið

  • útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (Boolean) formúlur
  • setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum
  • tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu
  • forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum
  • forrita einfaldar örgjörvarásir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?