Fara í efni

STAÞ3RV10 - Starfsþjálfun í rafeindavirkjun 3

starfsþjálfun rafeindavirkja

Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: Starfsþjálfun rafeindavirkjun 2
Lögð er áhersla á að nemandi geti unnið sjálfstætt að viðgerð, samsetningu og uppsetningu rafeindabúnaðar. Geti gert sér grein fyrir hvort bilun sé hugbúnaðar eða vélbúnaðar eðlis. Nemandi sýni leikni í starfi og hæfni í beitingu mælitækja og verkfæra. Nemandi læri sjálfstæð vinnubrögð, mikilvægi góðrar framkomu og geti aðstoðað og unnið með og ráðlagt viðskiptavinum.

Þekkingarviðmið

  • lestri rásateikninga
  • tengingu og frágang ýmiskonar rafeindabúnaðar
  • notkun mælitækja við bilanaleit
  • tengingu rafeindabúnaðar við stjórn eða jaðarbúnað
  • virkni þeirra tækja sem hann vinnur við

Leikniviðmið

  • beita rökhugsun við bilanagreiningu
  • vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum
  • leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar
  • veita viðskiptavinum hámarks þjónustu

Hæfnisviðmið

  • vinna sjálfstætt við bilanagreiningu og lagfæringar
  • finna bilanir í rafeindabúnaði og gert við á faglegan og ábyrgan hátt.
  • meta þörf á hýsingu rafeindabúnaðar gagnvart ytri aðstæðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?