Fara í efni

EFRÉ3IB05 - Eftirréttir, matreiðsla

EFRÉ

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: VMAT2IB12, námssamningur í matreiðslu.
Nemandi lærir um eftirréttarflokkana heita, kalda og frosna eftirrétti. Nemandi lærir um helstu eftirrétti, og almenna aðferðafræði við gerð eftirrétta. Enn fremur er lögð áhersla á að nemandi um læri bakstur sem tilheyrir eftirréttagerð. Nemendur læra um súkkulaði, temprun og konfektgerð.

Þekkingarviðmið

  • öllum eftirréttaflokkunum
  • grunnaðferðum í gerð eftirrétta
  • meðferð og temprun á súkkulaði
  • mismunandi tegundir súkkulaðis
  • sígildum eftirréttum
  • öllum helstu bindi- og bragðefnum í eftirréttagerð

Leikniviðmið

  • hanna og setja fram nýja eftirrétti og beita gagnrýninni hugsun
  • forgangsraða verkefnum og sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnu sinni.
  • afla hagnýtra upplýsinga og greina á milli áreiðanleika þeirra og fræðilegs gildis.
  • útfæra sígilda eftirrétti í nútímalegt form

Hæfnisviðmið

  • meta gæði vinnu sinnar með skapandi og gagnrýnni hugsun.
  • skipuleggja, útfæra og framkvæma grunnþætti í eftirréttavinnu
  • þróa kunnáttu og leikni í eftirréttagerð
  • geta skipulagt vinnusvæði og framreiðsluferla
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?