Fara í efni

TÓMS1ST02 - Skapandi tómstundir

endurnýting og dægradvöl, Ýmiskonar skapandi handverk

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn er einstaklingsmiðaður og miðar að því að nemandinn öðlist leikni í margvíslegri listsköpun sem nýtist honum í leik og starfi. Markmiðið er að nemendur kynnist fjölbreyttum aðferðum sem notaðar eru við ýmiskonar handverk, endurnýtingu og fl. og að þeir læri að leita fanga í ýmsum hugmyndabönkum s.s. í blöðum, bókum og á veraldarvefnum. Lögð verður áhersla á frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi skapandi aðferðum við sköpun og dægradvöl
  • mismunandi áhöldum og efnivið
  • hvar á að leita að hugmyndum og leiðbeiningum

Leikniviðmið

  • nota viðeignadi áhöld
  • vinna verk með fjölbreyttum aðferðum
  • vinna verk úr fjölbreyttum efnum
  • afla og útfæra hugmyndir

Hæfnisviðmið

  • takast sjálfstætt á við skapandi verkefni
  • nýta tómstundir sér til gagns og ánægju
  • nýta og tengja þekkingu sína við daglegt líf
  • sækja sér viðbótar þekkingu t.d. stök námskeið
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?