Fara í efni

DANS1HT01 - Danska með áherslu á tjáningu

hlustun, tjáning og framburður

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Unnið verður með talmál dönskunnar þar sem tjáningin er höfð að leiðarljósi. Áhersla verður á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun þeirra tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Hlustun, umræður, hugtakaskilningur og lestur verður nálgunin í áfanganum og notast verður við bókmenntir, kvikmyndir, tímarit og veraldarvefinn með fjölbreyttum verkefnum til að byggja ofan á þá þekkingu sem fyrir er.

Þekkingarviðmið

  • algengum orðum, orðasamböndum og stuttum setningum
  • einföldum leiðbeiningum og upplýsingum á danskri tungu
  • að tjá sig um afmörkuð efni
  • framburði í dönsku máli

Leikniviðmið

  • heilsa, kynna sig, þakka fyrir sig og afsaka sig með viðeigandi orðalagi
  • tjá sig fyrir framan nemendahópinn á sinn hátt
  • mynda einfaldar setningar
  • greina heiti og einstök orð, þegar talað er á danskri tungu
  • skilja aðalatriði í einföldum samtölum, taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir

Hæfnisviðmið

  • heilsa, kynna sig, þakka fyrir sig og afsaka sig með viðeigandi orðalagi
  • tjá skoðanir sínar og tilfinningar á danskri tungu
  • segja frá efni sem fjallað hefur verið um í stuttu máli
  • líkja eftir framburði á algengum orðum, orðasamböndum og stuttum setningum
  • tjá sig um þau orð og orðasambönd, t.d. sem hann hefur lært
  • mynda og svara einföldum spurningum út frá orðaforða sem tengist viðfangsefninu
  • vinna samtalsæfingar út frá fyrirmyndum sem fengist hefur verið við
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?