Fara í efni

STAR1SG01(AV) - Náms og starfsfræðsla með áherslu á starfsgreinar

starfsgreinar

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Nemendur eiga að vera komnir á 6. - 7. önn og hafa lokið STAR1ST01
Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá tækifæri til að fræðast um mismunandi starfsgreinar og störf þeim tengdum. Nemandinn fær tækifæri til að víkka reynsluheim sinn með þvi að upplifa og kynnast margvíslegum störfum. Nemandinn undirbýr og vinnur úr starfsnámi og vettvangsheimsóknum sem hann tekur þátt í.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum starfsheitum
  • fjölbreyttum vinnustöðum
  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • þeirri færni sem nauðsynleg er í mismunandi störfum
  • í hverju störfin eru fólgin

Leikniviðmið

  • tengja viðeigandi starfsheiti við vinnustaði
  • taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti
  • sækja sér upplýsingar um ný og áður óþekkt starfsheiti
  • vinna úr vettvangsheimsóknum með ýmsu móti
  • taka þátt í umræðum tengdum störfum
  • búa til verkefnabók

Hæfnisviðmið

  • þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felast
  • átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmsum starfsheitum
  • taka þátt í atvinnulífinu
  • efla áhuga og virkni í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
  • þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?