Fara í efni

STAR1RS01(AV) - Náms og starfsfræðsla með áherslu á réttindi og skyldur

réttindi og skyldur

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Að hafa lokið sem svarar a.m.k. fimm anna námi og hafa lokið STAR1ST01
Nemandinn þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fær fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn fái tækifæri til að fræðast um mismunandi atvinnugreinar og störf þeim tengdum. Nemandinn víkkar út reynsluheim sinn með því að upplifa og kynnast margvíslegum störfum. Nemandinn undirbýr og vinnur úr starfsnámi og vettvangsheimsóknum sem hann tekur þátt í.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum vinnustöðum og störfum
  • að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur
  • þeirri færni sem nauðsynleg er í mismunandi störfum
  • í hverju störfin eru fólgin

Leikniviðmið

  • nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
  • lesa launaseðla
  • fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
  • vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði
  • vinna úr vettvangsheimsóknum með ýmsu móti
  • taka þátt í umræðum tengdum störfum
  • búa til verkefnabók

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í atvinnulífinu
  • hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
  • nýta sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
  • taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum til að efla áhuga og virkni í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
  • þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?