Fara í efni

STÆF1PR02 - Stærðfræði með prósentureikning

prósentureikningur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á prósentureikning með fjölbreyttum nálgunum. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum í prósentureikningi
  • tölum og reikniaðgerðum
  • forgangsröðun aðgerða

Leikniviðmið

  • beita prósentureikningi í einföldum dæmum
  • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
  • leysa úr stærðfræðilegum prósentuupplýsingum
  • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð

Hæfnisviðmið

  • setja fram tölulegar upplýsingar
  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • reikna afslátt á vörum og/eða þjónustu
  • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?