Fara í efni

NÁSS1ST06 - Náms- og starfskynning

kynning á verknámsgreinum VMA, starfsbraut

Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Í áfanganum gefst nemandanum kostur á að kynnast þeim verknámsmöguleikum sem eru í boði hverju sinni í skólanum. Nemandinn fæst við fjölbreytt verkefni og kynnist vinnubrögðum sem nýtast honum í daglegu lífi s.s. líkamsbeitingu. Að auki kynnist hann starfsgreinum og atvinnumöguleikum sem bjóðast að loknu starfsnámi í framhaldsskóla. Nemandinn fer á milli verklegra deilda í skólanum og tekst á við margvísleg verkefni tengd hverri faggrein fyrir sig. Mikið er lagt upp úr öryggi á vinnustöðum og umgengni. Leitast er við að nemandinn finni styrkleika sína og öðlist sjálfstraust til að sinna ólíkum verkefnum og finni áhugasvið sitt í gegnum fjölbreytt nám.

Þekkingarviðmið

  • námsleiðum innan VMA og þeim möguleikum sem standa til boða í verk- og/eða starfsnámi
  • helstu hugtökum og viðfangsefnum hinna ýmsu verk- og starfsgreina
  • grunnatriðum sem snúa að öryggi á vinnustað
  • atvinnumöguleikum að loknu verk- og/eða starfsnámi
  • réttum vinnustellingum

Leikniviðmið

  • beita ýmsum verkfærum við vinnu í ólíkum verklegum greinum
  • beita líkamanum rétt við mismunandi aðstæður
  • bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í því vinnuumhverfi sem hann er staddur í hverju sinni
  • greina styrkleika sína og tengja áhugasvið sitt við nám
  • setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og samhygð

Hæfnisviðmið

  • stunda árangursríkt nám á framhaldskólastigi og taka ábyrgð á eigin námi
  • taka afstöðu til áframhaldandi náms við skólann, verklegs eða bóklegs
  • vera ábyrgur og ganga vel um vinnustaðinn m.t.t. öryggis og frágangs
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?