Fara í efni

HREY1ÍÚ01 - Íþróttir með áherslu á útivist og göngu

Íþróttir og útivist

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn kynnist útvist og möguleikum til gönguferða utandyra. Skipulagðar gönguferðir verða farnar í nær- og fjærumhverfi skólans. Nemandinn fær leiðsögn við að velja sér fatnað og skóbúnað sem hæfir til gönguferða.

Þekkingarviðmið

  • að hægt er að nota útivist og göngu til að viðhalda eða bæta líkamsástand
  • að velja verður viðeigandi fatnað og skóbúnað eftir viðfangsefni hverju sinni
  • mikilvægi þess að setja sér markmið

Leikniviðmið

  • auka hraða í göngu
  • ganga lengri vegalengd
  • auka þrek og úthald í göngu
  • vara sig á hættum

Hæfnisviðmið

  • fara í gönguferðir, lengri eða styttri, einn eða með fjölskyldu og vinum
  • fara í skipulagðar gönguferðir með ferðafélagi
  • njóta þess að ganga
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?