Fara í efni

SMÍV3RE05(BV) - Smíði og hönnun rafeindarása

DIN skinnu, eðlisfræði íhluta, hermiforrit, rafeindarásir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þessum áfanga lýkur með sveinsprófi. Hér velja nemendur sér verkefni við hæfi og hanna og smíða rafeindatæki sem hefur tiltekið hlutverk. Nemendur geta stuðst við hönnun annara hvort heldur sem er af neti, bókum eða tímaritum. Nemendur hanna heildarrrásina, kanna virkni í hermiforriti, hanna prentplötu, prenta, æta eða fræsa plötuna. Íhlutir lóðaðir á plötuna, rásin prófuð og sannreynd. Rásin þarf kassa sem nemandi smíðar úr áli, blikki eða plasti með 3D prentun. Nemendur stúdera jafnframt virkni rásarinnar og skulu geta útskýrt virkni hennar. Val á verkefni er í samvinnu við kennara og sveinsprófsnefnd. Valið miðast við vinnutíma bak við 5 einingar en æskilegt er að nemendur sýni metnað í vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi vandaðrar hönnunar
  • þáttum sem spila inn í hönnun rása s.s. hitasveiflum, raka, iðustraumum, span og rýmdaráhrifum rása, utanaðkomandi truflunum, truflunum frá búnaði útávið.

Leikniviðmið

  • hanna og smíða rafeindarásir með I/O tengjum og stillingum
  • sannreyna virkni rása með mælitækjum og stöðluðum mælieiningum
  • smíða hlífar, kassa til að vernda búnað gagnvart raka, utanaðkomandi truflunum og hita.

Hæfnisviðmið

  • hanna frá grunni rafeindarás.
  • setja rás á prent hvort heldur sem er fyrir gegnumgangsíhluti eða yfirborðslóðaða íhluti.
  • sannreyna virkni rásarinnar með mælitækjum eins og sveiflusjá, tíðnigjafa og AVO mæli.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?