Fara í efni

NETV3RE05(BV) - Nettækni og miðlun

bilanaleit, staðarnet, uppsetningar, víðnet

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Áfanginn fjallar um miðlægan tölvubúnað í netkerfum fyrirtækja. Nemendur læra um uppbyggingu og virkni miðlægs vélbúnaðar og netstýrikerfa. Þeir læra um algengustu stýrikerfi, diskakerfi, netþjóna, kælibúnað, varaafl, eftirlistbúnað og skýjalausnir af ýmsum gerðum. Farið er í öryggisafritun gagna og þau kerfi sem eru notuð til að tryggja örugga varðveislu afritanna. Nemendur kynnast stærri gagnageymslum ásamt því að heimsækja fyrirtæki sem hýsa gögn. Lögð er áhersla á net og miðlunarþjónustur meðal stórra og stærri fyrirtækja. Í lok þessa áfanga þekkir nemandinn uppbyggingu og virkni miðlægs búnaðar og hvernig farið er að því að tryggja að netþjónusturnar haldist í gangi þrátt fyrir bilanir, auk þess hvernig öryggi gagnanna og afrita sé best fyrir komið.

Þekkingarviðmið

  • miðlægum tölvubúnaði fyrirtækja
  • netkerfum og uppbygging þeirra
  • algengustu diskakerfum tölvukerfa
  • eftirlistkerfum með miðlægum tölvubúnaði

Leikniviðmið

  • setja upp einfalt netstýrikerfi
  • setja upp öryggisafritun
  • setja upp hugbúnað til eftirlits með netþjónustum og tölvubúnaði

Hæfnisviðmið

  • áætla stærð netkerfis fyrir lítil fyrirtæki
  • hanna netstýrikerfi, server og net fyrri smærri fyrirtæki
  • hanna og ráðleggja afritun á mismunandi gögnum
  • hanna og ráðleggja um eftirlitskerfi með miðlægum tölvubúnaði
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?