Fara í efni

VIÐB3VE03 - Viðhald og breytingavinna

Viðhald og endurbætur bygginga og byggingahluta

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: BURÐ1BK03 og TIMB2VS16
Í áfanganum lærir nemandinn um viðgerðir og endurbætur á eldri byggingum og mannvirkjum úr steini og tré. Nemandinn lærir um mikilvægi þess að varðveita byggingarsögulegt gildi húsa á sama tíma og hann reynir að koma til móts við kröfur nútímans um endingu, þægindi og brunavarnir með hliðsjón af lögum og reglum. Nemandinn lærir að meta umfang endurbóta með tilliti til kostnaðar og reglugerða ásamt greiningu á fúa, myglu, og steypuskemmdum, endurnýjun á burðarvirkjum, klæðningum, gluggum, hurðum og öðrum byggingarhlutum. Jafnframt lærir nemandinn um algenga breytingavinnu svo sem endurnýjun á gleri, smíði viðbygginga, breytinga á þökum og endurbætur vegna illa grundarðra húsa. Kennslan er aðallega bókleg en einnig verkleg þar sem við á. Lögð er áhersla á minni verkefni og sýnikennslu. Áfanginn er ætlaður verðandi húsasmiðum.

Þekkingarviðmið

  • byggingasögu
  • varðveislugildi mannvirkja
  • verklagi og reglum um endurgerð eldri bygginga
  • umfangi, áætlunum og kostnaði endurbóta
  • mismunandi aðferðum við endurbætur
  • efnisvali með tilliti til aldurs bygginga

Leikniviðmið

  • vinna sjálfstætt
  • greina og meta þörf á endurbótum
  • gera áætlun um kostnað og umfang endurbóta

Hæfnisviðmið

  • tengja saman alla þætti vinnustaðanáms og skólans
  • gera endurbætur við hæfi á mannvirkjum frá mismunandi tímum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?