Fara í efni

STAÞ3VS18(AV) - Starfsþjálfun vélvirkja

starfsþjálfun í vélvirkjun

Einingafjöldi: 18
Þrep: 3
Nám á vinnustað er skilgreindur hluti af námi í vélvirkjun. Starfsþjálfun er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók (sjá nánar um ferilbækur á vef Iðunnar http://www.idan.is/namssamningar/ferilbok).

Um nám og kennslu í áfanganum gilda ákvæði reglugerðar nr. 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.

Þekkingarviðmið

  • þeim efnum sem unnið er með í málmiðnaði
  • þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í málm- og véltæknigreinum
  • meðferð spilliefna og úrgangs
  • framleiðsluferli algengra smíðamálma, smíðahæfni, merkingum og efnisstöðlum

Leikniviðmið

  • meðhöndla málma, vélar og vélarhluta
  • nota helstu handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein
  • vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum
  • sjóða málma og velja suðutækni og -aðferð við hæfi

Hæfnisviðmið

  • lesa teikningar, málsetja, draga upp útflatninga, gera efnislista, meta efnisþörf og kostnað
  • vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í málmiðnaði og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum
  • skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni
  • eiga í samskiptum við aðra iðnaðarmenn, hönnuði, tæknifólk og verkkaupa. Hann þekkir skipulag starfsþjálfunar og hlutverk hennar í námi sínu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?