Fara í efni

IÐNT3IT05 - Iðnteikning

fríhendisteikning, iðnteikning, teikningalestur, þjálfun í tölvuteikningu

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemendur öðlast frekari færni í tölvuteikningu með áherslu á gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Öðlast þjálfun í fríhendisteikningu með áherslu á rissmyndir. Nemendur verða færir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.

Þekkingarviðmið

  • uppbyggingu rissmynda
  • stöðlum sem gilda um teikningagerð
  • táknum og merkingum á teikningum, þ.e. hvaða upplýsingar þær hafa að geyma
  • mælikvörðum sem algengir eru í smíða- og lagnateikningum
  • strikagerðum og strikaþykktum á teikningum og merkingum þeirra
  • reglum um málsetningar teikninga og notkun teiknileturs
  • framsetningu sniða og varpana
  • skástrikunum
  • samsetningateikningum
  • merkingu vinnslumerkja, málvika, suðufúga og suðutákna
  • grundvallarreglum við gerð útflatningsteikninga
  • grundvallarreglum við gerð ísómetrískra teikninga og kerfismynda
  • gerð samsettra teikninga og íhlutalista þeirra

Leikniviðmið

  • vinna rissmyndir til skýringa á hugmyndum
  • rissa upp einfaldar þrívíðar myndir af smíðahlutum
  • skýra með teikningum hugmyndir um útlit og tilgang einfaldra smíðahluta
  • staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og aðra uppsetningu
  • setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hægt sé að smíða hlutinn
  • beita þeim vinnuaðferðum sem krafist er við gerð vélateikninga og þjálfaðar hafa verið í áfanganum

Hæfnisviðmið

  • teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
  • teikna einstaka vélahluta og samsettar myndir samkvæmt fyrirmælum
  • teikna sjálfstætt hluti samkvæmt skriflegum leiðbeiningum, velja íhluti og málsetja
  • gera efnis- og tækjalista eftir teikningum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?