Fara í efni

BUFR4KS05(AV) - Burðarþolsfræði

kraftar, spennur og færslur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Nám í þessum áfanga á að veita nemendum undirstöðuþekkingu í burðarþolsfræðum að því marki að þeir geti notað burðarþolsútreikninga til að ákvarða stærð og styrk ýmissa vélarhluta og lagt mat á efnisgerð út frá þeim.

Þekkingarviðmið

  • eiginleikum helstu málma við tog- eða þrýstiálag
  • grundvallaratriðum jafnvægisfræðinnar
  • fjöðrun í efnum og lögmál Hooks
  • togspennu, þrýstispennu og skurðarspennu
  • aðferðum við að reikna út spennur í bitum og vélahlutum
  • skurðkröftum og bognunarvægislínuriti fyrir burðarálag á öxla og bita
  • flatar- og viðnámsvægi öxla og bita
  • Euler-reiknireglunni og beitingu hennar við útreikninga á álag á súlur

Leikniviðmið

  • reikna út togspennur, þrýstispennur og skurðarspennur þversniðum
  • reikna út skurðkrafta og bognunarvægi fyrir öxla og bita
  • reikna út flatar- og viðnámsvægi fyrir ýmis þversnið
  • reikna út spennur í öxlum og bitum
  • reikna út styrk í súlum m.a. á grundvelli Euler-reiknireglunnar

Hæfnisviðmið

  • reikna burðarþol til að ákvarða stærð og styrk ýmissa öxla, bita og vélarhluta
  • velja málma og efnismagn sem standast kröfur um styrk og hámarka efnisnýtni
  • vinna sjálfstætt og leggja gagnrýnið mat á útreikninga
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?