Fara í efni

VLVV3LR05 - Lokaverkefni

lokaverkefni rafvirkja

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Áfanginn er tekinn á seinustu önn í náminu
Í þessum áfanga vinna nemendur lokaverkefni þar sem þeir nýta þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér í hinum ýmsu þáttum námsins. Nemendur velja verkefni í samvinnu við kennara í upphafi annar og gera því næst verk- og kostnaðaráætlanir og önnur gögn er verkið varða. Æskilegt er að verkefni tengist atvinnulífinu og sé unnið í samstarfi við fyrirtæki en það getur einnig verið hreint skólaverkefni sem tengist vinnu nemenda í öðrum áföngum. Í upphafi áfanga er mikilvægt að nemendur fái sameiginlega kynningu á aðferðafræði verkefnavinnunnar og þeim kröfum sem skólinn gerir varðandi gæði verkefna, faglega breidd og dýpt, umfang, efnistök, framsetningu, frágang. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni ýmist einir eða tveir saman að lokaverkefni. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð nemenda en nauðsynlegt er að þeir hafi aðgang að kennurum og e.t.v. einnig aðilum í atvinnulífinu sem gætu veitt leiðsögn í verkefnavinnunni. Í lok áfangans leggja nemendur fram verkefni sín og kynna þau innan skólans.

Þekkingarviðmið

  • vinnubrögðum við undirbúning og framkvæmd sjálfstæðrar verkefnavinnu
  • öryggis- og reglugerðarákvæðum sem verkið varða

Leikniviðmið

  • gera vinnulýsingar og vinnuteikningar
  • framkvæma viðeigandi prófanir og mælingar vegna verkefnisins
  • velja efni, búnað og aðferðir við hæfi
  • skrifa greinargóða skýrslu um verkefni

Hæfnisviðmið

  • afla sér viðeigandi upplýsinga og nýta sér leiðsögn og ráðgjöf annarra
  • útfæra og vinna eftir verkáætlun, vinnulýsingu, teikningum o.s.frv.
  • gera öðrum grein fyrir verkefni sínu, kynna það og útskýra einstaka þætti þess
  • setja sér markmið og gera verk- og kostnaðaráætlanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?