Fara í efni

RLTV3KS05 - Raflagnateikning 2

kostnaðaráætlanir, raflagnir stærri veitur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RLTV2HT05
Nemendur öðlast vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana í seinni hluta áfangans.

Þekkingarviðmið

  • íslenskum staðli um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A
  • heitum og hugtökum raflagnateikninga
  • magntöku og kostnaðartöku raflagna
  • helstu teikniforritum
  • almennum og sértækum teiknitáknum
  • teiknireglum og staðalákvæðum varðandi þurra-, raka– og rykuga staði

Leikniviðmið

  • lesa úr raflagnateikningum
  • teikna í ofangreindar neysluveitur
  • beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga

Hæfnisviðmið

  • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum
  • nýta sér minnst eitt teikniforrit sem notað er við gerð teikninga
  • velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur
  • magntaka og reikna kostnað á tölvtæku formi fyrir allar neysluveitur
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?