Fara í efni

RALV2TF03(AV) - Raflagnir 4

lagnir fyrir fjarskiptakerfi, tölvukerfi, öryggiskerfi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: RALV2TM03
Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd öryggis- og brunakerfi. Gerðar verða mælingar og farið í bilanaleit í þessum kerfum og hvernig gert er við bilanir. Áfanginn er verklegur og kenndur samhliða VSME2LÖ05

Þekkingarviðmið

  • lagningu bruna- og boðskiptalagna
  • kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum
  • uppröðun í tengiskápa
  • mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum

Leikniviðmið

  • tengja stjórnstöðvar brunakerfa
  • leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt
  • setja upp og tengja mismunandi brunakerfi
  • finna út bilanir og gera við þær

Hæfnisviðmið

  • tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað
  • tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu
  • tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir
  • tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti
  • gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp
  • velja búnað í ljósleiðarakerfi og umgangast búnaðinn af þekkingu
  • ganga frá lögnum að brunakerfum og viðvörunarkerfum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?