Fara í efni

MEKV1TN03(AV) - Mekatronik 1

stafrænar rásir, talnakerfi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist stafrænni tækni og nái tökum á grundvallaratriðum hennar. Nemendur kynnast talnakerfum sem notuð eru við stafrænar rásir og kynnast hvernig breyta má tölum á milli þessara talnakerfa. Enn fremur kynnast nemendur virkni grunnhliða og læra teiknitákn þeirra. Lögð er áhersla á að nemendur prófi eiginleika tvíunda kerfisins með æfingum og tilraunum í hermiforriti og á tengispjaldi. Tölvutækni er notuð við verkefnavinnu og skýrslugerð. Nemendur læra aðferðir til að búa til textaskjöl með myndum í textavinnslu forriti. Einnig læra þeir grunnatriði í myndvinnslu með tilliti til notkunar mynda í skjölum og á vef. Nemendur læra einfalda flokkun skjala og námsefnis og vistun þeirra.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum stafrænnar tækni
  • talnakerfum sem notuð eru í stafrænni tækni
  • einfaldri myndvinnslu
  • gerð myndskreyttra textaskjal

Leikniviðmið

  • skilgreina virkni einfaldra rökrása
  • vinna með myndskreytt textaskjöl
  • teikna helstu grunnhlið
  • breyta tölum á milli tvíunda- og tugakerfis

Hæfnisviðmið

  • lesa virkni einfaldra rökrása
  • skilja einfaldar rökrásir
  • búa til myndskreytt textaskjöl og vista þau á mismunandi formi
  • skilja tákn helstu grunnhliða
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?